Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Hinn 21 ára Jackson Koivun stóðst pressuna gegn Scheffler og vann sinn fyrsta PGA-titil
Sunnudagur 26. júlí 2026 kl. 23:13

Hinn 21 ára Jackson Koivun stóðst pressuna gegn Scheffler og vann sinn fyrsta PGA-titil

Hinn 21 ára gamli nýliði Jackson Koivun stóðst alla pressu á lokahring 3M Open mótsins á PGA-mótaröðinni í kvöld þegar hann landaði sínum fyrsta sigri á mótaröðinni, á einungis sínu þriðja móti sem atvinnumaður. Scottie Scheffler, besti kylfingur heims, andaði ofan í hálsmál unga kylfingsins á lokahringnum með því að leika hann á 8 höggum undir pari en varð að sætta sig við 2. sætið í fjórða sinn á þessu ári.

Koivun, sem leiddi háskólalið síns skóla (Auburn) til Bandaríkjameistaratitils í  fyrr í sumar, spilaði lokahringinn á TPC Twin Cities vellinum í Minnesota á 66 höggum, fimm höggum undir pari. Hann lék síðustu tvo hringi mótsins án þess að fá einn einasta skolla og lauk leik á samtals 25 höggum undir pari, 259 höggum. Það er nýtt mótmet á 3M Open, en fyrra metið átti Lee Hodges (-24) frá árinu 2023.

Fyrir lokahringinn var Koivun með þriggja högga forystu eftir stórkostlegan 61 högga hring á laugardag, þar sem hann lék síðari níu holurnar á einungis 28 höggum.

Koivun lét engan bilbug á sér finna þrátt fyrir þrýsting frá Scheffler, hélt einbeitingu og gerði engin stór mistök. Hann landaði þriggja högga sigri með flottu pari á 18. holu og tryggði sér 1,58 milljónir Bandaríkjadala í verðlaunafé.

„Ég reyni bara að byggja á reynslunni úr háskólagolfinu þar sem við vorum oft í miklum spennuaðstæðum. Markmiðið var einfaldlega að fylgja leikskipulaginu og brosa á vellinum,“ sagði Koivun eftir mótssigurinn en „stráksi“ leikur alltaf með Titleist bolta nr. 1.

Mótið gaf jafnframt dýrmæt stig í FedExCup-stigakeppninni en einungis tvö mót eru eftir af reglulegu tímabili PGA-mótaraðarinnar áður en FedEx úrslitakeppnin hefst. Með sigrinum stökk Koivun upp um 124 sæti á stigalistanum og fór beint í 70. sætið – sem er nákvæmlega síðasta sætið sem veitir þátttökurétt í úrslitakeppninni.

Sögulegt augnablik mótsins átti sér einnig stað á föstudaginn þegar Michael Kim lék annan hring mótsins á 59 höggum og varð einungis 15. kylfingurinn í sögu PGA-mótaraðarinnar til að rjúfa 60 högga múrinn. Kim fataðist flugið um helgina og hafnaði í 10. sæti.