Harrington skrifar í sögubækurnar - vann US Senior í þriðja sinn
Írinn Patraig Harrington heldur áfram að bæta magnaðan feril sinn og hefur tryggt sig inn í Frægðarhöll golfsins en hann sigraði á Opna bandaríska mótinu, US Senior Open, á Scioto Country Club, í þriðja sinn og annað árið í röð en mótinu lauk á sunnudag.
Harrington lék eins og sá sem valdið hefur á lokadegi mótsins og gaf Bandaríkjamanninum Stewart Cint engan möguleika á því að vinna þriðja risamótið í röð á þessu ári.
Harrington hóf daginn einu höggi á eftir Cink, heitasta leikmanninum á öldungamótaröðinni í Bandaríkjunum. Harrington lék af miklu öryggi og spilaði á 66 höggum, eða 4 höggum undir pari, og varði þar með titilinn sem hann vann á The Broadmoor í fyrra.
Samtals lék hann hringina fjóra á 12 höggum undir pari (268 höggum), fjórum höggum á undan Cink, sem átti vonbrigðadag á lokahringnum og spilaði á höggi yfir pari, 71 höggi eftir skollafrían 64 högga hring á laugardeginum. Harrington var eini leikmaðurinn í mótinu sem lék alla fjóra hringina undir 70 höggum, og það gerði hann án þess að þrípútta einu sinni á mótinu.
Nýliðarnir á mótinu, þeir George McNeill (71 högg, samtals 274) og Ian Poulter (67 högg, samtals 275), höfnuðu í þriðja og fjórða sæti. Retief Goosen, sem tvívegis hefur unnið Opna bandaríska, Jamie Donaldson, sem komst inn í gegnum úrtökumót, og Paul Stankowski deildu fimmta sætinu á 4 höggum undir pari (276).
Ásamt sigri sínum árið 2022 á Saucon Valley Country Club hefur hinn 54 ára gamli Harrington nú lyft Francis D. Ouimet bikarnum þrisvar sinnum, og jafnar þar með met Miller Barber heitins yfir flesta sigra í sögu mótsins. Hann er jafnframt fjórði leikmaðurinn til að verja titilinn, og bætist þar í hóp með Barber (1984-85), Gary Player (1987-88) og Allen Doyle (2005-06).
„Þetta er öðruvísi, ég verð að segja það,“ sagði Harrington, en tveir fyrstu sigrar hans á mótinu unnust í miklum spennutryllum. „Þetta er frábær tilfinning, en augljóslega var ekki sama dramatíkin og við erum vanir að bjóða upp á á lokakaflanum. Það þýðir samt ekki að ég hafi ekki fundið fyrir pressunni. Ég reyndi virkilega að halda einbeitingu. Ég vissi að ég var með góða forystu sem leyfði mér að miða á miðjar flatirnar og slá örugg högg.
En ég átti nokkur stór högg á lokaholunum sem tóku alla spennu úr þessu. Ég átti frábæra púttviku, og vá, golf er miklu auðveldara þegar maður púttar vel.“


