Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Haraldur út þrátt fyrir 3 undir pari - Ragga og Hulda í toppbaráttunni
Hulda Clara hefur farið vel af stað á LET Access mótaröðinni.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 12. júní 2026 kl. 19:56

Haraldur út þrátt fyrir 3 undir pari - Ragga og Hulda í toppbaráttunni

Það gekk misvel hjá íslensku atvinnukylfingunum á öðrum keppnisdegi í dag. Það dugði ekki hjá Haraldi Franklín að leika á 3 undir pari til að komast áfram. Stelpurnar á LET Access mótaröðinni leika í Tékklandi og tvær eru í toppbaráttunni.

Haraldur Franklín var við leik í Schladming-Dachstein í Austurríki. Hann lék á þremur undir pari á fyrsta hring þar sem hann fékk ekki skolla en gerði of mörg mistök í dag og kom inn á parinu. Eitt högg vantaði upp á til að komast í gegnum niðurskurðinn, í annað sinn á stuttum tíma þar sem -3 duga ekki í niðurskurð.

Íslenska golfkvennuþrennan sem keppir á LET Access mótaröðinni, þeirri næst sterkustu í Evrópu, byrjaði vel á Czech Ladies Challenge mótinu á Panorama vellinum í Tékklandi.  Ragnhildur Kristinsdóttir og Hulda Clara Gestsdóttir eru á parinu og deila sjöunda sætinu eftir fyrsta hring mótsins. Andrea Bergsdóttir er á þremur yfir pari og þarf góðan hring í 2. umferð.

Staðan í Tékklandi.