Haraldur áfram á Ítalíu
Haraldur Franklín Magnús er á fjórum undir pari eftir 36 holur á Italian Challenge mótinu í Viterbo á Ítalíu á Hotel Planner mótaröðinni, sem er nú næst sterkasta í Evrópu.
Haraldur hefur leikið ágætlega og var tvo fyrstu hringina á 70 höggum hvorn en -4 þurfti til að komast í gegnum niðurskurðinn. Haraldu lék seinni níu holurnar á -3 en það þurfti hann til að komast í gegnum niðurskurðinn.
Haraldur hefur ekki leikið keppnisgolf á Áskorendamótaröðinni síðustu tvo mánuði vegna stríðsátaka í miðaustur löndum.


