Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Gunnlaugur og Haraldur komust ekki áfram
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
þriðjudaginn 30. júní 2026 kl. 18:09

Gunnlaugur og Haraldur komust ekki áfram

Haraldur Franklín Magnús og Gunnlaugur Árni Sveinsson náðu ekki að vinna sér þátttökurétt á OPNA mótið, The Open en þeir léku á lokaúrtökumótum í dag. Tuttugu kylfingar komust áfram af 300, fimm úr hverju fjögurra lokaúrtökumóta sem voru þrjú í Englandi og eitt í Skotlandi.

Gunnlaugur Árni Sveinsson sem lék á West Lancashire í Englandi endaði 36 holurnar á höggi yfir pari. Hann „sprengdi“ á 2. holu í morgun, fékk 9 högg á par 5 holu. Hann náði aðeins að leiðrétta sinn hlut og endaði fyrri hringinn á þremur yfir pari. Hann lék seinni hringinn á tveimur höggum undir pari og 36 holurnar því á +1 og jafn í 36. sæti. Gulli var níu högg frá 5. sætinu og því er freistandi að vita hvað hefði gerst ef hann hefði ekki fengið stóra „sprengju“ á 2. holunni í fyrri hring.

Lokastaðan á West Lancashire.

Haraldur Franklín lék illa á fyrri hringnum, kom inn á níu yfir pari, 81 höggi. Hann bætti sig um tíu högg í seinni hringnum og lék hann á höggi undir pari, +8 í heildina. Efsti maður, Jack McDonald endaði á fimm undir pari og kylfingar jafnir í 5. sæti voru á -3.

Nick Carlsson úr Golfklúbbi Mosfellsbæjar endaði á +3, (77-70) í 19.-22. sæti.

Fyrrum stórstjarna, Sergio Garcia endaði á -1 og jafn í 30. sæti og Englendingurinn Danny Willett en þeir hafa báðir sigrað á Masters, endaði jafn í 18. sæti á -4. Þriðji Masters sigurvegarinn, Dustin Johson sem var skráður í lokamótið hætti við og keppti ekki.

Lokastaðan á Dundonald.

Meðal þeirra sem komust á OPEN 2026 var Norðmaðurinn Baard Bjoernevik Skogen frá Noregi en Norðmenn hafa verið í sviðljósinu að undanförnu.