Gulli hefur leik á fimmtudaginn - hér eru ráshóparnir
Gunnlaugur Árni Sveinsson mun hefja leik kl. 14:20 (18:20 á ísl.tíma) á Shinnecock Hills vellinum á fimmtudag. Með honum í ráshópi eru kylfingar frá Kólombíu og Japan, þeir Marcelo Rozo og Taihei Sato.
Þeir Rozo og Sato unnu sér báðir þátttökurétt í gegnum úrtökumót en kapparnir eru 32 og 36 ára og hafa verið atvinnukylfingar í rúman áratug.
Það eru heimskunnir kylfingar í hollinu á undan og tveimur þar á undan og því má búast við slatta af áhorfendum í nálægð við íslenska kylfinginn.
Í ráshópnum á undan Gulla eru þrír Bandaríkjamenn: J.T. Poston, sem vann mót á PGA nýlega, Pantrick Cantlay sem var í Ryderliði Bandaríkjanna síðustu tvö skipti og síðan Billy Horschel.
Það eru nokkur alvöru meistaraholl, Scottie Scheffler er til dæmis í ráshópi með ríkjandi US Open meistara, J.J. Spaun.
Rory Mcilroy er í holli með Ludvig Åberg og Tommy Fleetwood.
Gulli hefur leikið æfingahringi frá því á sunnudag. Hann lék 18 holur á Shinnecock Hills á sunnudag, m.a. með Patrick Reed og 9 holur í gær, mánudag. Þá var hann einn í holli. Hann leikur 9 holur í dag og verður þá með Dananum Nicolai Hojgaard, annar tveggja tvíburanna sem báðir hafa leikið með Ryderliði Evrópu. Hinn er Pierceson Coody, Bandaríkamaður frá Texan en hann á líka tvíburabróður sem er atvinnukylfingur.
Hann verður síðan í stjörnum prýddu holli á morgun, miðvikudag, í æfingahring því í ráshópnum eru Scottie Scheffler, Sam Burns og Gary Woodland. Allt heimsþekktir kylfingar, Scheffler efsti maður heimslistans.


