Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Gulli á Augusta:  Bara fullkominn og hrikalega flottur
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
miðvikudaginn 8. apríl 2026 kl. 11:17

Gulli á Augusta: Bara fullkominn og hrikalega flottur

Gunnlaugur Sveinsson fékk heimsókn á völlinn í teiggjöf

„Augusta völlurinn og allt svæðið er magnað. Allt er fullkomið og hrikalega flott. Ég myndi segja að allt sem maður hafði heyrt áður var satt, til dæmis hvað það eru rosalega brattar brekkur á mörgum holum og mikill hæðarmismunur,“ segir Gunnlaugur Árni Sveinsson en hann lék á háskólamóti á golfvelli í næsta nágrenni við Augusta National þar sem Masters mótið fer fram í þessari viku.

Gunnlaugur lék mhög vel á mótinu og var efstur í sínu LSU háskólaliði á -9. Hann segir að teiggjöfin í því móti hafi verið boð á að heimsækja Augusta völlinn á mánudegi fyrir Masters.

Foreldar Gunnlaugs mættu til Bandaríkjanna og fóru með syninum á Augusta og liðsfélagar hans í skólanum fóru líka. Gulli segir þessa heimsókn hafa verið mikla upplifun eftir að hafa horft oft á mótið í sjónvarpi og ýmindað sér hvernig þetta væri - en ná svo að stíga fæti á völlinn hafi verið ógleymanlegt. Hann segir margt sérstakt eins og til dæmis hvað brautirnar eru nálægt hvor annarri.

En hverjum spáir hann sigri á Masters í ár?

„Ég spái Englendingnum Justin Rose sigri. Hann endaði í 2. sæti í fyrra eftir bráðabana við Rory Mcilroy.“

En er ekki draumurinn og markmiðið eftir þessa heimsókn að leika á vellinum í framtíðinni sem atvinnumaður?

„Heldur betur, þetta var bara skoðunarferð,“ sagði Gulli sem keppir á næsta háskólamóti í Bandaríkjunum í næstu viku.

Íslendingurinn er í 10. sæti á heimslista áhugamanna í heiminum og hefur staðið sig frábærlega í háskólagolfinu.

12. braut á Augusta, líklega ein frægasta par 3 hola í heimi.

Úrslit hafa oft ráðist á 18. brautinni.