Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Guðrún tvö högg frá niðurskurði í Marokkó
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 23. maí 2026 kl. 10:24

Guðrún tvö högg frá niðurskurði í Marokkó

Guðrún Brá Björgvinsdóttir atvinnukylfingur úr Hafnarfirði var tveimur höggum frá því að komast í gegnum niðurskurðinn á Lalla Meryem mótinu í Rabat í Marokkó sem fram fór á hinum glæsilega Blue Course velli Royal Golf Dar Es Salam, sem er einn þekktasti keppnisvöllur Norður-Afríku.

Guðrún lék fyrri hringinn af tveimur á fimm yfir en seinni hringinn á einu höggi undir pari. Blái völlurinn er 5900 metra langur sem er algeng lengd á öftustu teigum á golfvöllum á Íslandi.

Staðan.

Guðrún Brá hefur ekki enn náð í gegnum niðurskurð á mótum sem hefur tekið þátt í á þessari keppnistíð en aldrei verið langt frá því. Vonandi fara hlutirnir að smella hjá Hafnfirðingnum en hún er meðal keppenda á Evian mótinu sem er árlega í Frakklandi.