Guðrún á tveimur yfir í Sviss - Hulda og Andrea í ágætum málum í Slóvakíu - Haraldur í Írlandi
Nýbakaður fimmfaldur Íslandsmeistari, Guðrún Brá Björgvinsdóttir úr Keili lék á tveimur yfir pari á fyrsta hring á Swiss Ladies mótinu á Migros Golfpark Holzhausern golfvellinum í Sviss. Guðrún Brá fór til Sviss strax á mánudagsmorgun eftir sigurinn á Íslandsmótinu. Mótið er á LET Evrópumótaröð kvenna, þeirri sterkustu í Evrópu.
Guðrún fékk tvo skolla, tvo fugla og einn tvöfaldan skolla, á 2. braut, í hringnum. Hún er jöfn í 82. sæti og er nálægt niðurskurðarlínunni.
Stöllur hennar, þær Hulda Gestsdóttir og Andrea Bergsdóttir voru einnig við leik á öðrum hring á móti í Slóvakíu.
Hulda er jöfn í 4. sæti á þremur yfir pari og Andrea á +5 en þegar þetta er skrifað áttu þær eftir 4-5 holur í öðrum hring.
Haraldur Franklín er á Irish Challenge mótinu á Áskorendamótaröðinni í Evrópu þar sem leikið á Killeen Castle golfvellinum í Írlandi. Hann lék á 73 höggum, einu höggi yfir pari. Hann er jafn í 102. sæti eftir fyrsta hringinn. Niðurskurður verður eftir annan hring.


