Guðmundur úr leik í Belgíu
Guðmundur Ágúst Kristjánsson er úr leik í Belgíu en hann lék annan hringinn á fimm höggum yfir pari og endaði á +6 á Soudal mótinu á Rinkven International vellinum í Antwerpen.
Guðmundur fékk tvo tvofalda skolla og þrjá skolla. Aðeins tveir fuglar litu dagsins ljós og okkar maður komst ekki í gegnum niðurskurðinn. Hann hefur nú tekið þátt í ellefu mótum og náð í gegnum niðurskurðinn í þremur og unnið sér inn um 3,5 milljónir króna á tímabilinu.