Fréttir

Guðjón og Karitas klúbbmeistarar í Öndverðarnesi
Klúbbmeistarar Öndverðarness 2024, Guðjón Gottskálk Bragason og Karitas Líf Ríkharðsdóttir.
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson
Sigurbjörn Daði Dagbjartsson skrifar
laugardaginn 13. júlí 2024 kl. 07:00

Guðjón og Karitas klúbbmeistarar í Öndverðarnesi

Meistaramót GÖ fór fram dagana 4. - 6. júlí. Alls skráðu 146 félagar sig til leiks og lék veðrið við kylfinga alla dagana og var mikil og góð stemming í Öndverðarnesi.
Það voru Guðjón Gottskálk Bragason sem lék hringina þrjá á +15 og Karitas Líf Ríkharðsdóttir sem lék á +28, sem urðu klúbbmeistarar.
Öll úrslit má sjá inni á golfboxinu en hægt er að sjá myndir á Facebook-síðu Golfklúbbs Öndverðarness.