Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Golfkonur léku flott golf og skáluðu í Moët í Öndverðarnesi - myndir
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 30. júlí 2026 kl. 10:29

Golfkonur léku flott golf og skáluðu í Moët í Öndverðarnesi - myndir

Kampavínsstemmning var í Öndverðarnesi á sunnudaginn þegar boðið var til kvenna-golfmóts Moët/Biotherm. Á þriðja tug kvenna mættu til leiks í blíðunni, léku golf við bestu aðstæður og skáluðu í Moët.

Leikið var í tveimur flokkum. Margrét Jamchi Ólafsdóttir úr Golfklúbbi Þorlákshafnar sigraði í A-flokki með 42 punkta. Aðeins einum punkti minna voru þær Svenný Sif Rúnarsdóttir og Ísey Hrönn Steinþórsdóttir, báðar í GR. Það var boðið upp á hörku skor því fjórar efstu voru á 90 höggum eða minna og tvær á 83 höggum.

Í b-flokki sigraði Berglind Sigurz Skúladóttir úr GÖ með 43 punkta. Með 42 punkta voru þær Kristrún Gunnarsdóttir úr GÖ, Ragnheiður Ragnarsdóttir úr GO og Guðný Laxdal Helgadóttir úr GÖ.

Ljósmyndari Öndverðarness fór ljósmyndahring og hér er myndasafn úr mótinu.

Kampavínsgleði hjá Konum í Öndverðarnesi