Golfklúbbur Djúpavogs endurvakinn á nýjum golfvelli
Áhugasamir kylfingar hafa áhuga á að endurvekja Golfklúbb Djúpavogs en um hartnær 20 ára skeið frá árinu 1991 til 2010 eða svo var starfandi metnaðarfullur golfklúbbur í sveitarfélaginu sem setti upp og rak níu holu völl að Hamri í Hamarsfirði. Sú starfsemi leið þá undir lok en nú hafa nokkrir áhugasamir tekið upp þráðinn að nýju og vonast til að geta opnað nokkrar brautir á nýjum stað strax í sumar.
Sagt er frá málinu á austurfrett.is. Þar segir: Það ekkert áhlaupaverk að byggja upp nýjan golfvöll sísona en á Djúpavogi hafa nokkrir áhugasamir kylfingar þegar lagt grunn að nýjum velli að Bragðavöllum að sögn Óskars Ragnarssonar, sem er einn skipuleggjenda. Vel hefur verið tekið í verkefnið og nú stendur yfir fjáröflun fyrir nauðsynlegum tækjum og græjum svo hægt verði að opna fyrstu brautirnar strax í sumar.
„Það má kannski segja að þessi hugmynd sé afleiðing hækkandi aldurs. Þegar maður hættir að geta spilað fótbolta þarf maður að finna sér eitthvað annað í staðinn og við vorum nógu margir saman áhugasamir til að gera meira en ræða bara um hlutina. Þar sem ég sjálfur bý á Bragðavöllum þar sem búskapur er enginn fyrir utan ferðaþjónustu þá eru túnin hér ágæt til að hefja uppbyggingu að nýju og við hófum strax síðasta sumar að undirbúa það svæði. Hér hefur verið nokkur vakning í golfinu bæði meðal barna, unglinga og þeirra sem eldri eru þannig að tíminn er góður held ég.“
Gamla svæðið ónýtt
Gamla golfvallarsvæðið að Hamri, sem töluverð vinna var sett í á sínum tíma, reyndist við skoðun vera orðið ónýtt að mestu svo finna þurfti nýjan leikvöll.
„Margir hafa saknað þess vallar enda töluvert í hann lagt á fámennum stað á sínum tíma. En hann reyndist bara of ónýtur þegar eftir allan þennan tíma þannig að við fórum að skoða aðra möguleika. Nú standa vonir til að við getum opnað einhverjar brautir í sumar þó við náum sennilega ekki níu holum að þessu sinni. Til þess þarf peninga og fjáröflun gengur rólega þó áhugi sé víða til staðar.“
Ferðalangar gætu hjálpað
Rekstrargrundvöllur golfvallar að Bragðavöllum er líkast til sterkari en að Hamri þar sem á fyrrnefnda staðnum er vinsæl ferðaþjónusta þegar til staðar.
„Gamli klúbburinn átti fína golfvallarslátturvél og ég notaði hana til að skapa svona útlínur nýs vallar um leið og við ákváðum að gera þetta síðasta sumar. Við erum svona að gæla við að minnst 20 manns hér í kring séu nógu áhugasamir til að spila hér reglulega frá upphafi og vonandi enn fleiri en það þegar til kemur. Hugsanlega hjálpar líka að hér er rekin ferðaþjónusta og kannski hefur ferðafólk áhuga á að prófa aðstöðuna þegar þar að kemur.“


