Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Góðir golfsiðir Guðmundar
Guðmundur Oddsson er hér á mynd fyrir nokkrum árum. Hann hefur tekið saman áhugaverðan og nauðsynlegan lista fyrir kylfinga.
Miðvikudagur 8. júlí 2026 kl. 06:50

Góðir golfsiðir Guðmundar

Golf er einstök íþrótt. Hún snýst ekki aðeins um að slá falleg högg heldur líka um heiðarleika, virðingu og góða framkomu. Guðmundur Oddsson, fyrrverandi formaður Golfklúbbs Kópavogs og Garðabæjar hefur tekið saman mjög svo nauðsynlegan lista sem allir kylfingar ættu að lesa og fara eftir.


Hér eru atriði sem gott er fyrir unga sem aldna að hafa í huga á golfvellinum:

Vertu róleg(ur) þegar aðrir slá.
Ekki tala eða hreyfa þig þannig að þú truflir kylfinginn sem er að slá.

Gefðu öðrum nægt pláss.
Allir eiga skilið að geta einbeitt sér að högginu sínu.

Öryggið er alltaf númer eitt.
Sláðu aldrei boltann fyrr en allir sem eru fyrir framan þig eru komnir í örugga fjarlægð.

Vertu tilbúin(n) þegar röðin kemur að þér.
Þá gengur leikurinn hraðar og allir njóta hans betur.

Leitaðu aðeins að boltanum í allt að 3 mínútur.
Ef boltinn finnst ekki er kominn tími til að halda áfram.

Lagfærðu það sem þú skilur eftir.
Settu torfusnepla aftur í kylfuför og lagfærðu boltaför á flötunum.

Rakaðu glompuna eftir að þú hefur slegið úr henni.
Næsti kylfingur á að fá jafn góðan völl og þú.

Ef þú spilar hægt skaltu hleypa hraðari hópi fram úr.
Það sýnir kurteisi og virðingu.

Skildu golfsettið eftir þar sem auðvelt er að halda áfram á næsta teig.

Golfbílar eiga aldrei að fara of nálægt flötunum.

Ekki ganga í púttlínu annarra á flötinni.

Passaðu að skugginn þinn trufli ekki þegar aðrir pútta.

Farðu af flötinni um leið og allir hafa lokið holunni. Skráðu skorið síðan á næsta teig.

Að loknum hring er skemmtileg hefð, að taka ofan húfuna og þakka meðspilurunum fyrir   hringinn með handabandi.
Það er mikilvægt að temja sér sjálfsstjórn og þó höggið sé slæmt, sem alltaf kemur fyrir, þá skiptir máli að bölsótast ekki upphátt út í höggið, heldur segja við sjálfan sig, næsta högg verður miklu betra. Það er nefnilega fátt leiðinlegra en spila með fýlupokum og nöldrurum.
 
Það mikilvægasta er þetta:

  • Frábær golfari er ekki bara sá sem slær lengst eða skorar lægst.
  • Frábær golfari sýnir alltaf heiðarleika, virðingu, kurteisi og hjálpsemi.
  • Ef þú fylgir þessum reglum verður gaman að spila með þér og þú munt njóta golfsins enn meira.