Fréttir

Góð skor á Ólympíuleikunum -þrír jafnir í efsta sæti
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 2. ágúst 2024 kl. 17:02

Góð skor á Ólympíuleikunum -þrír jafnir í efsta sæti

Nýbakaður sigurvegari á OPNA mótinu, Bandaríkjamaðurinn Xander Schauffele er jafn í efsta sæti með Japananum Hideki Matsuyama og Englendingnum Tommy Fleetwood á Ólymmpíuleikunum eftir 36 holur. Þeir eru á ellefu höggum undir pari.

Það er fjölþjóðlegt í toppbaráttunni því næstu menn eru Spánverjinn Jon Rahm  á -9 og Belginn Thomas Detry, Kínverjinn C.T. Pan og Tom Kim frá S-Kóreru á -8.

Leikið er á hinum margfræga Le National golfvellinum í París. Sextíu keppendur í karla- og kvennaflokki taka þátt.

Staðan eftir 36 holur.