Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Dagbjartur, og bræðurnir Sigurður og Ragnar áfram á 2. stigið
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
föstudaginn 11. september 2026 kl. 16:53

Dagbjartur, og bræðurnir Sigurður og Ragnar áfram á 2. stigið

Þrír Íslendingar, Dagbjartur Sigurbrandsson og bræðurnir Sigurður Arnar og Ragnar Garðarssynir tryggðu sér í dag inn á annað stig úrtökumótanna fyrir DP Evrópumótaröðina eftir að hafa lent í efstu nítján sætunum í Michendorf í Þýskalandi. Fimm aðrir íslenskir kyflingar kepptu á mótinu og komust ekki áfram.

Dagbjartur Sigurbrandssson lék lokahringinn á 69 höggum og lék best Íslendinganna í mótinu. Hann endaði í 6.-8. sæti á 9 höggum undir pari.

Sigurður Arnar lék lokahringinn á 68 höggu og endaði á sex undir pari. Ragnar bróðir hans var lokahringinn á 70 höggum og endaði á fimm undir pari. Sigurður endaði í 11.-13. sæti og Ragnar í 14.-17. sæti.

Hér má sjá hvernig Íslendingarnir léku:

(6,-9. sæti) Dagbjartur Sigurbrandsson -9 (71-69-70-69)

(11.-13. sæti) Sigurður Arnar Garðarsson -6 (71-70-73)

14-17. sæti) Ragnar Garðarsson -5 (73-67-73-68)

(29. sæti) Aron Júlíusson -1 (69-71-75-72)

(36.-39. sæti) Logi Sigurðsson +1 (74-72-74-69)

(40.-45. sæti) Tómas Eiríksson Hjaltested +2 (75-74-71-70)

54.-57. sæti) Hlynur Bergsson +6 (76-72-73-73)

(58.-60. sæti) Johann Frank Halldórsson +6 (72-74-76-74)

Staðan.

Tíu mót voru haldin fyrir fyrsta stigið. Fjögur mót eru fyrir annað stigið og verða haldin 29. okt til 1. nóvember. Lokaúrtökumótið fer fram 6.-11. nóvember.