Allt jafnt eftir fyrsta dag í Solheim bikarnum
Leikar eru hnífjafnir eftir fyrsta dag í Solheim bikarnum sem fram fer á Bernardus golfvellinum í Hollandi en þetta er í fyrsta skipti sem stórmót af þessari stærðargráðu fer fram í landinu.
Í fjórmenningi í morgun fóru leikar 2-2 en eftir hádegi var leikinn fjórleikur. Ekki var minni spenna þar en henni lauk á síðustu flöt þegar 4 metra pútt hjá hinni spænsku Carlota Siganda fór ofan í fyrir pari til að jafna leikinn gegn sterku liði Bandaríkjakvenna, besta kylfingi heims, Nelly Korda og Austin Kim. Þær höfðu báðar ágæta möguleika á fugli á síðustu holu en tókst ekki að setja púttin sín ofan í.
Niðurstaðan 4-4 eftir fyrsta daginn. Á laugardag verða aftur leiknir fjórmenningur og svo fjórbolti en þriðja og síðasta keppnisdaginn er leikinn tvímenningur. Þetta er Ryder keppni kvenna ef svo má segja og henni hefur vaxið fiskur um hrygg á síðustu árum og er nú orðið einn af stærstu viðburðum í golfi í heiminum.
Svipmyndir frá fyrsta degi.



