Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Glæsilegir ferðavinningar í FARA golfmóti í Borgarnesi
Mynd frá Casa de Campo í Dóminíska Lýðveldinu.
Þriðjudagur 7. júlí 2026 kl. 10:29

Glæsilegir ferðavinningar í FARA golfmóti í Borgarnesi

Þann 26. júlí fer golfmótið FARA Open fram á hinum glæsilega Hamarsvelli í Borgarnesi. Vinningar eru stórglæsilegir, m.a. stórir ferðaviningar til nýrra áfangastaða ferðaskrifstofunnar. Fyrirkomulag er tveggja manna texas en leiknar verða 18 holur.

Í tilkynningu frá ferðaskrifstofunni segir að í tilefni þess að FARA er að hefja sölu á ferðum á eitt flottasta golf resort í heimi, Casa De Campo í Dóminíska Lýðveldinu, verður hvorki meira né minna en ferð fyrir tvo á þennan „Bucket list“ áfangastað í fyrstu verðlaun. Þar er m.a spilað á hinum margrómaða „Teeth of the dog“ velli sem margir kannast eflaust við úr Trackman hermunum í vetur. FARA býður upp á áhugaverðar golfferðir í haust.

Vinningaskrá :

Teiggjöf - Allir þáttakendur fá gjafabréf hjá FARA og aðra skemmtilega glaðninga með.

1.sæti - Ferð fyrir tvo á Casa De Campo þar sem allt er innifalið.

2.sæti - Ferð fyrir tvo á Empordá Golf í Katalóníu

3.sæti - 100.000kr gjafabréf hjá FARA ásamt fleiri glæsilegum vinningum

Glæsileg nándarverðlaun á öllum Par 3 holum

Lengsta drive karla og kvenna. Dregið úr skorkortum.