Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

GKG leggur til fjölgun golfvalla í Kópavogi
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
mánudaginn 16. mars 2026 kl. 13:19

GKG leggur til fjölgun golfvalla í Kópavogi

Golfklúbbur Kópavogs og Garðabæjar (GKG) hefur farið þess á leit við bæjarráð Kópavogs að stofnuð verði nefnd til að skoða uppbyggingu nýrra golfvalla. Tilefnið er mikil fjölgun iðkenda og langir biðlistar eftir plássi í golfklúbbum.

Samkvæmt gögnum GKG eru um 3.500 kylfingar skráðir í Kópavogi, sem jafngildir tæplega 9% íbúa bæjarins. Til samanburðar er svipaður fjöldi kylfinga skráður hjá Golfklúbbi Reykjavíkur, sem rekur tvo 18 holu golfvelli, einn 9 holu keppnisvöll og minni æfingavöll. Í Kópavogi eru hins vegar einungis níu golfholur staðsettar á landi sveitarfélagsins, á Leirdalsvelli efri. 

Í ljósi framangreindrar stöðu óskar GKG eftir því að stofnuð verði sameiginleg nefnd sem kanni eftirfarandi tvo valmöguleika og eftir atvikum aðra valkosti er varðar uppbyggingu golfíþróttarinnar innan Kópavogs:

· Bygging 18 holu golfvallar suðaustan við Guðmundarlund og myndi uppfylla allar þær kröfur sem gerðar eru til golfvalla í dag. Völlurinn myndi nýtast með sama hætti og aðrir vellir GKG í dag það er fyrir almenna kylfinga sem og barna-, unglinga- og afrekstarf.

· Bygging 9 holu golfvallar í Fossvogsdal. Golfvöllur sem væri par 3 og par 4 brautir. Það yrði tilvalinn völlur fyrir börn og unglinga, nýbyrjendur sem og þá kylfinga sem vilja láta reyna á stutta spilið. Gætt yrði að öllum öryggisþáttum varðandi umferð á göngu- og hjólreiðastígum. Völlurinn yrði unninn í þéttu samstarfi við aðra hagsmunaraðila á svæðinu. Með þeim hætti yrði golfvöllurinn samþáttaður öðru útivistarsvæði í
Fossvogsdal.

Kópavogspósturinn ræddi við Agnar Már Jónsson, framkvæmdastjóra GKG og spurði hann hvor valkosturinn er betri fyrir klúbbinn eða fá báða kostina? 

,,Þetta er í raun tveir mjög ólíkir valkostir. Fossvogsdalurinn gæti orðið par3/par4 holu völlur. Markhópurinn væri börn-/unglingar, eldri kylfingar og nýbyrjendur. Einnig væri hann góður kostur fyrir þá kylfinga sem vilja bæta járnaspilið sitt. Gætt yrði vel að öllum öryggisþáttum og völlurinn yrði hannaður í góðu samstarfi við þá hagsmunarðila sem þegar eru með starfsem í dalnum. Völlurinn við Guðmundarlund yrði aftur á móti 18 holu keppnisvöllur með æfingasvæði og öðru sem til þarf. Ef velja á á milli þessara tveggja möguleika yrði hann mun vænlegri kostur.“

Og hvað tekur núna við? 

„Vonandi verða næstu skref þau að sett verði saman nefnd. Það þarf að vega og meta alla möguleika en við gætum séð fyrir okkur að hún ætti að geta skilað af sér hugmyndum á nokkrum mánuðum,“ segir Agnar en hann hefur bent á að biðlisti í klúbbinn sé langur og biðtíminni gæti verið allt að áratugur. Því væri málið brýnt.