Get ég verið með í golfherma-æðinu?
Golfhermaæði hefur gripið Íslendinga á síðustu árum og í fyrra voru slegin yfir 25 milljón högg í TrackMan-golfhermum og æfingasvæðum á Íslandi. Samkvæmt tölum GSÍ eru yfir 200 golfhermar á landinu en hvað eru margir komnir með sinn einkagolfhermi heima í bílskúr eða jafnvel sumarbústað? Fyrirtækið Kjaran í Reykjavík selur golfherminn ProTee VX og þessi hermir „fjölgar sér nú hratt“ enda kostar hann bara um þriðjung þess dýrasta sem er á flestum stöðum og bjóða kylfingum í golfhermi.
Arnar R. Birgisson er einn eigenda í fjölskyldufyrirtækinu Kjaran. Hann byrjaði í golfi sumarið 2021 þegar hann varð fimmtugur. Markmiðið er sífellt að lækka forgjöfuna, fyrst undir 20 og það tókst síðasta sumar en forgjöfin er komin niður í 17,5. Hann stefnir neðar enda er maðurinn með alvarlega golfdellu. Lykillinn að lækkandi forgjöf er Protee golfhermirinn og svo hefur hann farið til golfkennara.
„Ég keppti í 5. flokki á meistaramóti GR árið 2023 og setti mér þá markmið um að stoppa aðeins eitt ár í hverjum flokki. Það klikkaði aðeins í fyrra, en ég komst í 3. flokk í sumar og stefni á 2. flokk að ári. Þá á ég bara tvo flokka eftir áður en ég skipti yfir í öldungaflokkinn,“ segir kappinn.
Sá tækifæri í frábærum golfhermi
Arnar sá tækifæri þegar hann kynntist ProTee golfherminum og fór alla leið með því að taka tækið í sölu á Íslandi. „Þessi búnaður passaði vel inn í vörulínuna okkar í Kjaran og þegar ég kynntist þessum skemmtilega golfhermi betur sannfærðist ég enn meira um gæði tækisins,“ segir hann þegar ritstjóri Kylfings.is heimsótti hann en ProTee VX golfhermir er nú uppsettur í húsnæði fyrirtækisins í Síðumúla. Ritstjórinn á sjálfur golfhermissögu því hann flutti inn golfhermi fyrir Suðurnesjamenn fyrir aldarfjórðungi síðan. Þá voru mjög fáir golfhermar á Íslandi og tæknin ekki nærri eins mikil og skemmtileg og í dag.
„Þetta er frábært tæki sem greinir golfhöggið þitt og gefur samstundis eða innan 0,3 sekúndna upplýsingar um boltaflugið og sveifluferilinn. Það er ekki þörf á því að nota merkta golfbolta og límmiðar á kylfur eru óþarfir,“ segir Arnar.
En aðeins um græjuna: ProTee VX inniheldur tvær myndavélar og gervigreind sem gefa hárnákvæmar mælingar og myndræna framsetningu á öllum upplýsingum. Protee VX er lofthengdur búnaður og hentar jafn vel fyrir rétthenda og örvhenda kylfinga, án nokkurrar stillingar. Í hugbúnaðinum sem fylgir með er golfvallaforrit (ProTee Labs hugbúnaðarleyfi) með hundruð valla til að velja úr. Skjávarpinn er HD eða 4k upplausn og með birtustig eftir hentugleika. Tveir tölvuskjáir með snertiskjá sýna upplýsingar um allt það helsta, t.d. hvernig kylfuhausinn fer í boltann og alls kyns fleira sem nýtist þegar maður vill rýna í sveifluna. Æskileg stærð á plássinu fyrir golfherminn, sem sjálfur er nett tæki sem fer upp í loft, er frá 2,8 metrum á hæðina og gólfflötur að lágmarki 24 m2. Gólfefnið er gervigras fyrir teighögg og pútt. Tjaldið er með smá sveigju og getur verið allt að 7 metrar á breidd (?). Hljóðdempandi veggplötur ramma þetta inn ásamt lýsingu, setsvæði og plássi fyrir golfpoka.
„Þetta er frábært tæki sem greinir golfhöggið þitt og gefur samstundis eða innan 0,3 sekúndna upplýsingar um boltaflugið og sveifluferilinn. Það er ekki þörf á því að nota merkta golfbolta og límmiðar á kylfur eru óþarfir,“ segir Arnar.
Gott æfingatæki og skemmtileg keppnisgræja
En hvað kostar svona græja? „Fullbúinn golfhermir kostar á milli 2-3 milljónir króna, með öllu helsta um 3 milljónir. Loforð um lækkandi forgjöf fylgir ekki en þeir sem eru duglegir að stunda sveifluna og nýta sér möguleikana í tækinu hafa alla möguleika á því,“ segir Arnar en þegar Kylfingsritstjórinn mætti til leiks var Arnar að slá stutt högg. Hann þarf að æfa 30-50 metra höggin eins og flestir og ekki bara með því að senda boltann með sextíu eða 56 gráðu fleygjárninu, heldur með 8 eða 9-járni, láta boltann lenda fyrir utan flöt og rúlla inn á. Þetta kunnum við sem erum uppaldir í Leirunni. Á skjánum var Old Head strandvöllurinn í Írlandi. Stillt var á „links“ og þannig er hægt að æfa eins og maður sé á strandvelli en aðrar stillingar eru „soft“ og normal. „Þú veist að þú þarft að snúa efri parti líkamans í þessum höggum,“ sagði ritstjórinn sem sjálfur þarf að æfa þessi högg meira.
„Já, ég veit,“ sagði Arnar en eigum við ekki að taka nokkrar holur? Jú, var svarað að bragði. Hann fór í græjuna og fann Augusta National og við ímynduðum okkur að við værum í lokahring á Masters. Fram undan voru holur 11-13 á þeim magnaða golfvelli. Við lékum þessar æðilslegu brautir og það gekk á ýmsu. Þetta er ekki auðveldur golfvöllur en svo sá ég að Margeir Vil frændi minn hafði leikið hann á rétt rúmlega pari í einhverri keppni í golfhópi þeirra félaga. Það má alveg koma fram hér að það var sá sem þetta ritar - sem kenndi Madda golf í upphafi í Leirunni. Nú er hann reyndar orðinn flottur golfkennari og (oftast) betri kylfingur en frændi hans, fjandans gaurinn.
Áttu laust pláss, bílskúr?
Arnar segir að allmargir einstaklingar hafi þegar keypt sér ProTee VX-græjuna sem kostar um þriðjung á við dýrustu úgáfu af golfhermi sem flestir eða margir bjóða hér á landi. Margir bílskúrar eru nú betur nýttir en að geyma bíla en svo hafa nokkrir golfklúbbar líka tekið ProTee VX í sína þjónustu. Arnar segir að viðbrögð þeirra sem hafi prófað og keypt séu mjög góð. Undir það getur sá sem þetta ritar tekið undir en ritstjórinn er í golfhópi sem hefur stundað golf í Golfhöllinni í Reykjavík undanfarin ár en þar er frábær aðstaða með Trackman-hermum. Þessi hermir (ProTee VX) er ekki síðri.
En þó að það sé gaman að spila flotta golfvelli í háskerpu með öllum helstu upplýsingum um högg og sveiflu þá ættu kylfingar að nýta sér það að æfa líka, fara á æfingasvæðið (í græjunni), æfa hin ýmsu högg og ef maður er „slæsari“ eða gerir einhverja aðra „vitleysu“ þá er hægt að finna lausn á því með hjálp svona skemmtilegrar græju. Í henni fær maður upplýsingar um bolta-„hegðun“, sveifluferil og boltaflug og þessar upplýsingar koma á snertiskjáinn en líka á stóra skjáinn sem maður slær boltann í. Nánar hjá Kjaran hér.
Nú er bara spurning hvort maður setji Mustanginn í sölu og noti peninginn til að….

Arnar útskýrir fyrir ritstjóranum tækni hermisins, boltaflugið, hvernig kylfuhausinn kemur í boltann og margt fleira. Neðst á myndinni er önnur myndavélin af tveimur sem myndar kylfinginn.

Púttin tekin fyrir, hér má sjá hvernig pútterinn kemur aðeins „opinn“ í boltann enda fór boltinn til hægri.


Hermirinn skilar ótrúlega skarpri og skýrri mynd. Hér er Arnar að slá inn á 13. flöt á Augusta vellinum. Muniði þegar Rory Mcilroy vippaði af stuttu færi og endaði í læknum fyrir framan?

Arnar hjá Kjaran segir að það séu komnir all margir Protee hermar upp víða um land. Hann er með einn uppðsettan í húsnæði fyrirtækisins í Síðumúla þar sem hægt er að prófa græjuna.


