Jafnaði heimsmetið með níu fuglum í röð
Skoski öldungakylfingurinn Scott Drummond gerði sér lítið fyrir og jafnaði heimsmetið í fjölda fugla í röð á Portugal Lengends mótinu á Evrópumótaröð öldunga. Hann fékk níu fugla í röð í öðrum hring mótsins og rétt missti fuglapútt fyrir tíunda í röð sem hefði verið nýtt heimsmet.
Drummond fékk par á fyrstu fimm brautirnar en síðan komu níu fuglar í röð út 14. holu. Hann skemmdi aðeins skorkortið með því að fá einn tvöfaldan skolla á 17. og skolla á 18. holu en endaði þó hringinn á sex undir pari.
Kappinn var einn af minni spámönnunum þegar hann lék á Evrópumótaröðinni. Hann vann þó einu sinni og það stærsta mótið, Volvo PGA Champinship á Wentworth árið 2004.
Það er sérstakt að enginn hafi fengið tíu fugla í röð í sögunni en meðal þeirra sem hafa náð níu í röð auk Drummonds má nefna Mark Calcavecchia, Matt Wallace og síðasts Nathan Kimsey á Dunhill mótinu í St. Andrews haustið 2025. Þá gerði Luren Coughlin það sama á LPGA mótaröðinni sama ár.

Calcaveccia vann Opna mótið, The Open 1979.


