Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Garðar með albatross í Leirunni
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
þriðjudaginn 9. júní 2026 kl. 12:22

Garðar með albatross í Leirunni

Garðar Sigurðsson, kylfingur í Golfklúbbi Suðurnesja gerði sér lítið fyrir og lék 6. brautina á Hólmsvelli, sem er par 5, á tveimur höggum, eða albatross.

„Ég var um 215 metra frá pinnanum og eftir drævið var boltinn á 7. brautinni sem er fyrir neðan. Þaðan tók ég „hybrid“ og sló frábært högg. Boltinn lenti fremst á flötinni og svo sá ég ekkert meira en sagði við félaga mína í hollinu að þessi gæti verið ofan í. Ég sá boltann ekki á flötinni og kíkti því í holuna þar sem hann var, geggjað,“ sagði Garðar aðspurður um höggið.

Blendingskylfan hefur reynst Garðari vel því hann fékk örn á 4. brautinni á Korpu (sjónum) í fyrrasumar.

Líkurnar á því að ná albatrossi er 1 á móti milljón og afar fáir ná því.

Líkurnar á því að fara holu í höggi eru frá 5000-12.000.