Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Fyrsti sigur Huldu á atvinnumannamóti - vann í Tékklandi
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
sunnudaginn 14. júní 2026 kl. 15:36

Fyrsti sigur Huldu á atvinnumannamóti - vann í Tékklandi

Hulda Gestsdóttir tryggði sér sinn fyrsta sigur á atvinnumannamóti á Raiffeisen Bank Czech Ladies Challenge á LET Access Series (LETAS) mótaröðinni í Tékklandi í dag. Eftir spennandi keppni vann hún með einu höggi.

Nýliðinn á LETAS, sem lék sitt fjórða mót síðan hún gerðist atvinnumaður árið 2025, lék þriðja hringinn í röð á 72 höggum og lauk leik á jöfnu pari samtals, einu höggi á undan Natalie Armbruester frá Sviss (74).

Í viku þar sem keppinautar hennar létu gremjuna ná tökum á sér á öldóttum velli Panorama Golf Resort, þar sem vindasamt var og rigndi með köflum, sýndi Hulda íslenska seiglu enda vön því að veðurguðirnir geta verið í misjöfn skapi.

„Þetta eru nokkuð íslenskar aðstæður hérna, veðurfarslega,“ sagði hún. „Ég vissi að ef ég gæti bara verið þolinmóð og einbeitt mér að hverju höggi, þá ætti ég góða möguleika.“

„Þetta er nýliðaárið mitt. Ég er mjög ánægð með hvernig ég er að spila núna og mér líður frábærlega. Ég bjóst í raun ekki við þessu svona snemma, en ég er mjög ánægð með það. Þetta tekur bara pressuna af fyrir komandi mót. Svo ég er bara mjög ánægð með að vera hér,“ sagði Hulda í viðtali við LET eftir sigurinn.

Hulda hóf daginn einu höggi á eftir Armbruester, sem leiddi eftir gærdaginn, og byrjaði af krafti með fuglum á 2. og 5. holu.

„Það hjálpaði mér virkilega að komast inn í hringinn,“ sagði hún. „Pútterinn minn var mjög góður í dag. Ég rúllaði boltanum nokkuð vel og las flatirnar vel, sem var bara frábær tilfinning. Að hafa þetta sjálfstraust í pútternum hjálpaði bara allan hringinn.“

En skollar á sjöttu og níundu holu þýddu að hún var jöfn Armbruester eftir fyrri níu holurnar.

Hulda svaraði strax með fugli á 10. holu, sem er par-4, og á 15. holu var hún með þriggja högga forystu eftir að Armbruester fékk skolla á 13. og 15. holu.

Þrátt fyrir að missa af flötinni á 16. holu og fá skolla, lék Hulda síðustu holurnar á pari og tryggði sér sinn fyrsta sigur á LETAS. Fugl Armbruester á lokaholunni dugði aðeins fyrir öðru sætinu.

„Fyrst hélt ég að ég væri aðeins með eins höggs forystu, svo ég hélt að við værum að fara í bráðabana,“ sagði Hulda. „En svo áttaði ég mig á því að ég hafði unnið, svo það var mjög gaman.“

„Ég var mjög stressuð í innáhögginu á 18. holu. Ég ákvað að taka styttri kylfu því ég vissi að adrenalínið myndi láta mig slá boltann aðeins lengra, sem það og gerði.

Svo í fyrsta púttinu var ég bara mjög ánægð með að ná að setja það nálægt holunni og setja svo litla púttið ofan í til að vinna.“

„Ég var stressuð, en meira bara spennt, því ég horfi yfirleitt ekki á stöðuna nema ég sé á eftir og reyni að ná forystunni. Það var bara mjög góð tilfinning að vita að ég gæti bara spilað minn leik, og vonandi væri það nóg, og það var það í dag.“

Markmiðið mitt væri að vinna aftur. Það væri frábært. Endanlegt markmið er að komast inn á LET mótaröðina frá LET Access, svo vonandi kemst ég þangað.

Ég er að fara til Prag með pabba mínum í kvöld, flugið okkar er ekki fyrr en á morgun, svo ég fer líklega og fæ mér góðan mat og ís til að fagna,“ sagði Hulda glöð.

Moa Svedenskiold frá Svíþjóð endaði ein í þriðja sæti á tveimur höggum yfir pari samtals eftir að hafa lokið keppni á 71 höggi á lokadeginum, á meðan Lucie Vachova frá Tékklandi var einu höggi á eftir í fjórða sæti og varð þar með besti heimamaðurinn af 132 keppendum.

Andrea Bergsdóttir endaði jöfn í 31. sæti en hún lék á +10, 75-78-73.

Ragnhildur Kristinsdóttir endaði jöfn í 34. sæti á +13, 72-78-79.

Eftir fjögur mót leiðir Lauren Holmey frá Frakklandi stigalistann á LETAS með 819,00 stig. Armbruester er í öðru sæti (729,50). Hulda Clara hefur skotist upp í þriðja sæti (612,00). Ragnhildur er í 7. sæti með 412.90 stig og Andrea er í 28. sæti með með 132 stig.

Sjö efstu leikmennirnir í lok 19 móta LETAS tímabilsins munu tryggja sér keppnisrétt á LET fyrir 2027 tímabilið.