Frábært hjá Guðrúnu Brá - í annað sinn í 3. sæti
Guðrún Brá Björgvinsdóttir atvinnukylfingur lék frábært golf og endaði jöfn í 3. sæti á Platinium mótinu á Sunshine mótaröðinni í S-Afríku sem lauk í dag. Guðrún endaði á 14 höggum undir pari og lék líklega sitt besta golf á ferlinum í atvinnumannamóti.
Leikið var á Blair Atholl golfsvæðinu rétt utan við Jóhannesarborg en það er hannað af engum öðrum en Gary Player.
Guðrún lék lokahringinn á fjórum undir pari, 68 höggum, fékk sex fugla og tvo skolla.
Guðrún lék fyrsta hringinn á 69 höggum og annan hring á sex undir pari, 66 höggum.
Guðrún er að leika á sínu fjórði móti og hún var í 3. sæti í fyrsta mótinu sem hún lék í og var í 23. sæti í því næsta en komst ekki í gegnum niðurskurðinn í því þriðja.
Þetta var fjórða mót Guðrúnar á sólskinsmótaröðinni í S-Afrík og var þetta hluti af undirbúningi hennar fyrir komandi mót á LET Evrópumótaröðinni en fyrsta mótið hennar þar verður einmitt í S-Afríku í apríl.
Hún endaði tvisvar í 3. sæti í þessum fjórum mótum, einu sinni jöfn í 23. sæti og einu sinni komst hún ekki í gegnum niðurskurðinn.
Hulda Clara Gestsdóttir endaði í 33. sæti í þessu móti en á öðrum keppnisdegi var hún fyrir utan niðurskurðinn þegar leik var frestað en þá átti hún eftir níu holur. Þær lék hún mjög vel morguninn eftir eða á 5 undir pari og tryggði sig áfram. Lokahringinn lék hún á -2 og fékk engan skolla á hringnum. Þessi mót í S-Afréiku eru frumraun hennar á atvnnusviðinu.
Andrea Bergsdóttir var einnig meðal keppenda en komst ekki í gegnum niðurskurðinn.


