Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Flottur hringur hjá Andreu sem er í toppbaráttunni
Andrea Bergsdóttir lék frábært golf.
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 25. júní 2026 kl. 21:40

Flottur hringur hjá Andreu sem er í toppbaráttunni

Andrea Bergsdóttir er í toppbaráttunni á PGA mótinu á Elisefarm golfvellinum í Svíþjóð á LETas mótaröðinni í Evrópu. Andrea átti næst besta hring dagsins, 68 högg (-4) og er jöfn í 11. sæti fjórum höggum frá etir efsta sætinu.

Hulda Gestsdóttir er jöfn í 51. sæti eftir 36 holur en Perla Sól  Sigurbrandsdóttir komst ekki í gegnum niðurskurðinn en þetta er í fyrsta sinn sem hún leikur á mótaröðinni.

Skor eru frekar há á erfiðum golfvelli. Andrea lék fyrri hringinn á 77 höggum og bætti sig því um níu högg. Hún fékk sjö fugla í öðrum hring og þrjá skolla.

Hulda Gestsdóttir er jöfn í 51. sæti á +8 með hringi upp á 75-77.

Perla Sól Sigurbrandsdóttir lék á 75-79 (+10) og var tveimur höggum frá því að komast í gegnum niðurskurðinn.

Ragnhildur Kristinsdóttir er ekki meðal keppenda á þessu móti.