Fréttir

Flott golf hjá Guðrúnu Brá - endaði í 4. sæti
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
þriðjudaginn 17. september 2024 kl. 02:38

Flott golf hjá Guðrúnu Brá - endaði í 4. sæti

Guðrún Björgvinsdóttir úr Hafnarfirði endaði jöfn í 4. sæti á móti í Frakklandi á LET Access mótaröðinni um síðustu helgi. Þetta er hennar besta frammistaða á mótaröðinni.

Guðrún Brá lék á 71 og 70 höggum en vegna mikillar rigningar var ekki hægt að leika þrjá hringi. Frábær spilamennska hjá Guðrúnu á þremur undir pari.

Tvö mót eru eftir á mótaröðinni og verða Guðrún Brá og Ragnhildur Kristinsdóttir með á því næsta sem er Lavaaux Ladies Open í Frakklandi.

Guðrún Brá skaust upp stigalistann með þessari frammistöðu en hún er nú í 28. sæti en 30 efstu í lok leiktíðar komast beint á annað stig úrtökumótanna í haust.