Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Flott frammistaða hjá Haraldi í Þýskalandi
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
mánudaginn 13. júlí 2026 kl. 08:17

Flott frammistaða hjá Haraldi í Þýskalandi

Haraldur Franklín Magnús náði sínum besta árangri á þessari keppnistíð þegar hann varð jafn í 25. sæti á German Challenge powered by VcG mótinu á HotelPlanner Tour mótaröðinni. 

Haddi lék hringina fjóra á 70-71-70-68 höggum eða níu höggum undir pari.

Haraldur átti sinn besta hring í mótinu á lokadeginum þegar hann lék á 68 höggum, fjórum höggum undir pari. Hann fékk fugla á 4., 8., 12. og 15. holu og var skollalaus á hringnum.

Haraldur fór upp um 14 sæti á lokadeginum og er í 175. sæti á stigalistanum en Hotel Planner mótaröðin er sú næst sterkasta í Evrópu.