Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Fjörutíu ár frá síðasta risatitli Nicklaus - elsti sigurvegari á Masters
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 2. apríl 2026 kl. 14:05

Fjörutíu ár frá síðasta risatitli Nicklaus - elsti sigurvegari á Masters

Það styttist í einn stærsta golfviðburð ársins en Masters mótið hefst eftir viku á hinum goðsagnakennda Augusta National velli þar sem barist verður um hinn eftirsótta græna jakka. Mótið í ár er það 90. í röðinni,og ríkir gríðarleg eftirvænting í golfheiminum.

Fyrir fjörutíu árum eða 1986 sigraði sigursælasti kylfingur sögunnar, Jack Nicklaus á Masters í sjötta sinn og vann sinn 18. og síðsta risatitil. Jack varð þá elsti sigurvegarinn á Masters, 46 ára og það stendur enn.

Fyrir þrjátíu árum sigraði Englendingurinn Nick Faldo og vann sinn þriðja græna jakka eftir ótrúlegan lokahring en Ástralinn Greg Norman var með sex högga forskot fyrir lokahringinn.

Augusta National hættir aldrei að þróast. Fyrir mótið í ár hefur 17. holan verið stytt um tæpa 11 metra sem er áhugavert en getur boðið upp á nýja möguleika fyrir kylfinga.

Að venju munu eldri stórkylfingar slá upphafshögg mótsins, nú verða þeir Jack Nicklaus, Gary Player og Tom Watson með dræverinn á lofti á fyrsta degi mótsins og ýta því úr vör.