Fréttir

Fjórtán draumahögg í Mosó í sumar
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 11. júlí 2024 kl. 15:01

Fjórtán draumahögg í Mosó í sumar

Kylfingar í Golfklúbbi Mosfellsbæjar hafa verið heitir í sumar. Fjórtánda draumahöggið á þessu ári leit dagsins ljós í gær þegar Þórir Sigurjónsson fór holu í höggi á 3. braut í gær. Helgi Pálsson fór einnig holu í höggi á 4. braut, það voru því tveir kylfingar sem náðu þessum merkilega áfanga sama daginn.

Kylfingur.is hefur greint frá fleiri draumahöggum að undanförnu. Einar Einarsson fór til að mynda holu í höggi í Leirdalnum á Lexus mótinu.

Við hvetjum kylfinga til að senda okkur myndir og helstu upplýsingar um draumahöggin.

Helgi Pálsson sæll með gott högg.

Einar Einarsson fór holu í höggi í Leirdalnum.