Fjölbreytt golfsýning í Laugardalshöll
Golfsýningin GOLF EXPO hófst laugardaginn 7. mars í Laugardalshöll og lýkur á sunnudag 8. mars. Fjöldi fólks sótti sýninguna heim í gær og er von á miklum fjölda í dag.
Á sýningunni er það helsta í golfheiminum til sýnis, golfbúnaður og fatnaður, golfherar og tækni auk margs annars m.a. nýjungar í farartækjum og heilsu. Þá eru þekktir kylfingar með fyrirlestra.






