Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Fjögur draumahögg - kylfingar heitir
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
miðvikudaginn 27. maí 2026 kl. 16:55

Fjögur draumahögg - kylfingar heitir

Einherjaklúbburinn er einn mest vaxandi klúbbur kylfinga á Íslandi sem hafa verið heitir í vorinu því draumahöggin koma í kippum og það jafnvel í fyrsta hring. Hér kemur frásögn frá fjórum draumahöggum síðustu daga.

Hann Jón Tómas Ólafsson var að leika sinn fyrsta 18 holu golfhring og gerði sér lítið fyrir og smellti boltanum í holu á 15. braut á Þorláksvelli.

Anna Ólöf fór holu í höggi á 9. braut Bakkakotsvallar sl. mánudag. Hún smellhitti 9-járnið og boltinn lenti um 50 sm. frá holu og rúllaði ofan í. Anna byrjaði í golfi í vor og þetta var hennar fjórði alvöru golfhringur.

Rósa Ragnarsdóttir í Golfklúbbi Grindavíkur sló gott högg á 7. brautinni á Húsatóftavelli í fyrradag. Hún var með 8-járn og boltinn endaði í holu.

Þá yfir til Leirdalsvallar. Petrína Jónsdóttir náði draumahögginu á 4. braut sem er um 120 metrar af bláum teigum. Spilafélagi hennar, Hilmar Sigurjónsson sagði að boltinn hafi endað í holu en ég horfði ekki á eftir boltanum heldur fór ég að ganga frá kylfunni.