Fékk Range Rover fyrir holu í höggi
Hin tælenska Aunchisa Utama mun keyra burtu frá Marokkó á nýjum og glæsilegum Range Rover eftir mótið á LET Evrópumótaröðinni þar sem Guðrún Björgvins var meðal þátttakenda.
Aunchisa gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi á 17. brautinni sem er 166 metrar að lengd.


