Evrópukonur sterkari á lokadeginum og unnu Solheim bikarinn
Hin spænska Carlota Ciganda tryggði Evrópu sigur þegar liðið sigraði Bandaríkin 15–13 í tuttugasta Solheim-bikarnum sem fram fór á Bernardus golfvellinum í Hollandi og lauk í dag. Keppnin var æsispennandi en þær evrópsku voru sterkari á lokadeginum og tryggðu sér sigur.
Staðan var jöfn fyrir lokahringinn en Evrópa tók völdin í tvímenningnum á sunnudag og vann sjö stig af tólf– besti árangur liðsins á lokadegi síðan 2013. Með sigrinum ver Evrópa bikarinn á heimavelli og eykur forskot sitt í viðureignum sem spilaðar eru í Evrópu í 6–3–1.
Þetta var einnig í sjöunda sinn sem staðan var jöfn í Solheim-bikarnum fyrir lokahringinn. Í öll skiptin hefur heimaliðið sigrað eða varið titilinn, en eina jafnteflið kom árið 2023 á Spáni.
Ciganda tryggði sigurinn
Carlota Ciganda tryggði sigurinn með 4&2 sigri á Jennifer Kupcho, sem hafði staðið sig vel fyrir Bandaríkin fyrr í vikunni.
Með þessum úrslitum verður Ciganda aðeins annar leikmaðurinn í sögu Solheim-bikarsins til að tryggja sigurinn tvisvar, á eftir Catrionu Matthew, sem tryggði Evrópu sigur árin 2003 og 2013.
Grant leiddi sókn Evrópu
Linn Grant var framúrskarandi leikmaður Evrópu og vann alla fjóra leiki sína í vikunni. Fullkominn árangur hennar, 4–0–0, er sérstaklega eftirtektarverður eftir að hún tapaði öllum sínum leikjum, 0–4–0, í Solheim-bikarnum 2024.
Grant er fyrsti leikmaðurinn í sögu Solheim-bikarsins til að vinna sér inn að minnsta kosti fjögur stig eftir að hafa ekki unnið nein stig í síðustu keppni.
Nýliðaval Önnu Nordqvist, fyrirliða, hafði einnig mikil áhrif. Nastasia Nadaud lauk keppni með 3–1–0 árangur og þær Mimi Rhodes urðu fyrsta nýliðaparið í sögu Solheim-bikarsins til að vinna tvo leiki saman.
Bandaríkin börðust til loka
Alison Lee lék best hjá þeim bandarísku. Hún náði 4–0–0 árangri, þar á meðal tveimur sigrum á hinu sterka evrópska pari, Charley Hull og Lottie Woad.
Lee stóð einnig fyrir stærstu endurkomu í skráðri sögu Solheim-bikarsins þegar hún vann upp fjögurra holu forskot og sigraði Esther Henseleit í tvímenningnum. Hún varð fyrsti leikmaðurinn í sögu Solheim-bikarsins til að ná 4–0–0 árangri eða betur fyrir tapliðið.
Hull og Woad svöruðu fyrir sig í tvímenningnum á sunnudag eftir að hafa ekki unnið leik í umferðunum á undan. Þær unnu sína leiki og komust þannig hjá því að verða fyrstu leikmennirnir til að fara sigurlausir í gegnum fimm leikjahluta í sögu Solheim-bikarsins.
ÚRSLIT:
Charley Hull 2&1 gegn Megan Khang
Alison Lee 1UP gegn Esther Henseleit
Linn Grant 4&3 gegn Angel Yin
Nelly Korda 4&2 gegn Mimi Rhodes
Nanna Koerstz Madsen 2&1 gegn Allisen Corpuz
Nastasia Nadaud 3&2 gegn Andrea Lee
Julia López Ramírez 3&2 gegn Yealimi Noh
Lottie Woad 2&1 gegn Auston Kim
Lauren Coughlin 2&1 gegn Leona Maguire
Lindy Duncan 4&2 gegn Maja Stark
Carlota Ciganda 4&2 gegn Jennifer Kupcho
Rose Zhang 2UP gegn Céline Boutier






