Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Erfið byrjun hjá Gunnlaugi og Haraldi á úrtökumótunum
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
þriðjudaginn 30. júní 2026 kl. 11:58

Erfið byrjun hjá Gunnlaugi og Haraldi á úrtökumótunum

Það er á brattann að sækja hjá íslensku kylfingunum á lokaúrtökumótunum fyrir Opna breska meistaramótið, The Open, en þeir eru meðal 300 kylfinga sem berjast á fjórum stöðum um 20 sæti á mótinu. Haraldi gekk mjög illa á fyrri hringnum í morgun og er neðarlega og Gunnlaugur fékk 9 högg (+4) á 2. holu og er langt frá efstu fimm sætunum.

Gunnlaugur Árni sem leikur á West Lancashire vellinum lenti í miklum vandræðum á 2. braut sem er par 5. Hann lék hana á fjórum yfir pari, 9 höggum. Hann fékk síðan tvo fugla á fyrri níu, þriðja á seinni níu en lika skolla og endaði því á 75 höggum, +3. Forystusauðurinn á Lancashire er á -7 og jafnir í 4.-9. sæti er m.a. Spánverjinn Sergio Garcia fjórum undir pari. Margir þekktir kylfingar eru í hópnum, m.a. Danny Willett sem eins og Garcia hefur sigrað á Masters, en einnig Matt Wallace sem endaði m.a. í 2. sæti á Italian Open í síðustu viku á DP Evrópumótaröðinni, þeir eru á -1. Keppnin er því gríðarlega hörð og ljóst að verkefni Gulla er mjög erfitt.

Keppt er á fjórum úrtökumótum og vinna fimm efstu úr hverju móti sér þátttökurétt á The Open sem fram fer á Royal Birkdale um miðjan júlí.

Skorið á West Lancashire.

Haraldur Franklín lék á 81 höggi, var níu högg yfir pari á fyrri hringnum og er í 65. sæti af 71 keppanda á Dundonald golfvellinum í Skotlandi.

Nick Carlson sem var í Golfklúbbi Mosfellsbæjar en leikur nú á Áskorendamótaröðinni í Evrópu var á 77 höggum, + 5.

Forystusauðurinn á Dundonald er á -7 og sá sem er í 5. sæti er á -2 eftir fyrri 18 holurnar.

Skor á Dundonald.