Erfið byrjun hjá Gunnlaugi á US Open
Það er óhætt að segja að Gunnlaugur Árni Sveinsson hafi fengið vindinn í fangið í orðsins fyllstu merkingu á fyrsta keppnisdegi sínum á Opna bandaríska mótinu á Shinnecock Hills vellinum í New York í gær. Gulli hóf leik tveimur tímum seinna en áætlað var og þurfti að hætta eftir fjórtán holur og var þá níu yfir pari vallarins. Þoka tafði mótið.
Okkar maður þarf að vakna fyrr til að ljúka síðustu fjórum brautunum áður en hann hefur leik á öðrum hringnum.
Eftir þægilega byrjun á fyrstu holu þar sem hann fékk par var hann tvo yfir þegar hann kom á sjötta teig. Þar brást upphafshöggið og lenti utan vallar hægra megin. Fleiri vandræði fylgdu í kjölfarið og niðurstaða átta högg á par fjögur holu.
Tveir skolla fylgdu í kjölfarið og Gulli var ekki að leika sitt besta golf og var ekki nógu beinskeittur af teig. Hann fékk par á níundu braut, en skolli kom á 10. og 12, hann lék á pari á 11. holu og 13. og sló svo sitt besta högg þegar hann smellti öðru högginu í stöngina á 14. flötinni og tryggði léttan og jafnframt fyrsta fugl dagsins. Niðurstaðan +9 eftir 14 holur.
Gunnlaugur hefur leik kl. 10:35 að íslenskum tíma á föstudagsmorgni til að ljúka við 15.-18. holu.


