Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Ensku Fitzpatrick bræðurnir í sögubækurnar
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
mánudaginn 27. apríl 2026 kl. 10:50

Ensku Fitzpatrick bræðurnir í sögubækurnar

Ensku Fitzpatarick bræðurnir skrifuðu nýjan kafla í sögu PGA mótaraðarinnar þegar þeir sigruðu á Zurick Classic of New Orleans mótinu sem lauk í gær. Matt sem var að vinna sinn þriðja sigur á tveimur mánuðum hjálpaði yngri bróður sínum, Alex að vinna sér þátttökurétt á PGA mótaröðinni.

Þeir bræður voru í toppbaráttunni allt mótið og leiddu með fjórum höggum þegar níu holur voru eftir.

Fyrirkomulag mótsins er þannig að tvo daga leika þeir betri bolta og hina tvo fjórmenning, þannig að þá slá þeir annað hvort högg. Þannig er það á lokadeginum og þá reynir á taugarnar. Á 18. teig, á síðustu holu mótsins, voru þeir jafnir öðrum og þurftu að fá fugl til að tryggja sér sigur. Matt tók þessa holu að sér ef svo má segja, átti mjög gott upphafshögg en bróðir hans setti annað höggið á par 5 holunni í glompu um 50 metra frá stöng, á erfiðum stað en lengri glompuhögg eru talin þau erfiðustu. Þaðan sló Matt eitt af höggum ársins því boltinn stöðvaðist nánast strax um rúmt fet frá holu. Algerlega magnað.

Þeir enduðu á -31 en tvö pör enduðu höggi á eftir, norska parið með þeim Kristofer Reitan og Kris Ventura og Bandaríkjamönnunum Alex Smalley og Hayden Springer.

Eins og fyrr segir eru þetta stór tímamót hjá Alex Fitzpatrick sem getur nú farið að leika á mótaröð þeirra bestu í heiminum, PGA. Alex vann sér þátttökurétt í hitteðfyrra á DP Evrrópumótaröðinni og það þótti frétt að báðir bræðurnir voru meðal keppenda á OPNA mótinu á Royal Liverpool 2024. Nú verða þeir báðir á PGA. Matt hefur hins vegar verið í þvílíku stuði í síðustu fimm mótum sem hann hefur tekið þátt í. Hann varð annar á Players mótinu þar sem hann tapaði í bráðabana, hann vann næsta mót á eftir, Valspar, varð 18. á Masters, vann viku síðar á Heritage og tók þriðja sigurinn núna með bróður sínum. Það þarf að fletta upp í árangri Tigers Woods til að sjá svipaðan árangur.

Lokastaðan.