Englendingurinn prúði tók titilinn viku eftir vonbrigðin
Englendingurinn Matt Fitzpatrick var ekki lengi að jafna sig á því að hafa gert mistök á síðustu brautinni í Players mótinu fyrir viku síðan. Hann gerði sér lítið fyrir og sigraði á næsta móti, Valspar Open á Copperhead vellinum í Flórdía í gær. Fyrir viku síðan hirti Cameron Young af honum Players titilinn en nú gerði hann svipað á lokabrautinni þegar hann tók Valspar titilinn á síðustu brautinni.
Um tíma voru fimm í efsta sætinu á lokahringnum og Fitzpatrick fékk annan af tveimur fuglum dagsins á þriðju holu en var síðan í fjórum alvöru fuglafærum á næstu holum sem hann nýtti sér ekki. En hann hélt áfram að berjast og bætti við fugli á 15. holu og komst í forystu þegar hann setti fimm metra pútt ofan í á síðustu flötinni. David Lipsky var höggi á eftir honum og þurfti að setja ofan í fyrir fugli á lokaflötinni en tókst það ekki.
Fitzpatrick þótti sýna fyrirmyndar framkomu þegar hann óskaði Camerouun Young og fjölskyldu hans til hamingju með sigurinn um síðustu helgi, svo eftir var tekið. Englendingurinn fór með það með sér og gott golf í næsta mót og tók sigurinn. Vel gert.
Tveir aðrir enskir kylfingar voru í efstu fjórum sætunum. Jordan Smith náði sínum besta árangri á PGA mótaröðinni þegar hann varð í 3. sæti og Marco Penge, kylfingur ársins á DP mótaröðinni 2025 náði einnig sínum besta árangri þegar hann varð jafn í 4. sæti.
Ný styttist í fyrsta risamót ársins, Masters mótið en það verður 9.-12. apríl.


