ELVA Golf – Framtíðin í golfþjálfun
Íslenska tæknifyrirtækið ELVA Golf hefur þróað byltingarkennt greiningarkerfi fyrir golfþjálfun sem sameinar háþróaða tölvusjón, gervigreind og lífaflafræðigreiningu til að bæta árangur kylfinga á öllum getustigum.
Hvað er ELVA kerfið
Að sögn Þórðar Rafns Gissurarsonar, sölustjóra er ELVA kerfið greiningarkerfi sem notar átta háhraðamyndavélar til að mæla hreyfingar líkamans og kylfunnar í golfsveiflunni með mikilli nákvæmni. Kerfið safnar ítarlegum gögnum og breytir þeim í skýrar og aðgengilegar upplýsingar fyrir kylfinga og golfkennara.
Með þessari tækni geta kylfingar fengið tafarlausa endurgjöf um sveifluna sína og séð nákvæmlega hvernig breytingar á hreyfingum hafa áhrif á árangur. Kerfið gerir kylfingum kleift að byggja þjálfun á mælanlegum gögnum, fylgjast markvisst með framförum og vera hnitmiðaðari í þjálfuninni bæði með og án kennara.
Sérstaða ELVA felst í því að ekki þarf að nota skynjara eða merki á líkamanum, sem gerir greininguna bæði einfaldari og þægilegri fyrir notendur, á sama tíma og hún veitir afar nákvæmar upplýsingar um hreyfingar líkamans.
Fyrir hverja er kerfið
ELVA Golf er hannað fyrir breiðan hóp notenda, þar á meðal:
- Kylfinga á öllum getustigum, bæði byrjendur jafnt og atvinnukylfinga.
- Golfkennara sem vilja byggja kennslu á nákvæmum mælingum.
- Golfklúbba og rekstraraðila æfingasvæða, innandyra sem utan, sem vilja bæta gæði kennslu og þjónustu við kylfinga..
Kerfið hjálpar kylfingum að tengja tilfinningu við raunverulega hreyfingu og styður þannig hraðari og skilvirkari framfarir.
Mikill áhugi á PGA Sýningunni í janúar 2026
ELVA Golf hefur vakið verulega athygli á alþjóðavettvangi, meðal annars á PGA Sýningunni í Orlando, stærstu golfiðnaðarsýningu heims. Þar var kerfið kynnt fyrir golfkennurum, kylfingum á öllum getustigum auk stjórnanda golfklúbba, háskóla og rekstraraðila æfingasvæða víðsvegar að úr heiminum. PGA Sýningin er helsti vettvangur fyrirtækja til að kynna nýjungar fyrir golfheiminum. Viðbrögðin við ELVA kerfinu voru afar jákvæð og sýndu að mikil eftirspurn er eftir nákvæmri og aðgengilegri hreyfigreiningu sem umbreytir golfþjálfun. Sýningin markaði mikilvægt skref í alþjóðlegri kynningu kerfisins sem í dag er leiðandi lausn á sviði hreyfigreiningar án merkja og skynjara.
Kynning á Golf Expo í Laugardalshöll
ELVA Golf verður með kynningu á Golf Expo sýningunni sem fer fram í Laugardalshöll dagana 7. og 8. mars næstkomandi. Þar gefst gestum tækifæri til að kynna sér kerfið nánar og ræða við fulltrúa fyrirtækisins og golfkennarana sem unnið hafa með kerfið, þar á meðal: Ragnhildi Sigurðardóttur, Ragnar Má Garðarsson, Grétar Eiríksson og Þórð Rafn Gissurarson.
Allir áhugasamir kylfingar, golfkennarar og aðrir sem vilja fræðast um nýjustu tækni í golfþjálfun eru velkomnir að heimsækja ELVA Golf á sýningunni.

Markmið næstu ára
ELVA kerfin eru fimm talsins í dag. Þrjú eru staðsett á Íslandi og tvö í Bandaríkjunum. Þau þrjú sem eru á Íslandi eru staðsett í Golfklúbbi Kópavogs og Garðabæjar, Golfklúbbi Mosfellsbæjar og Golfhöllinni.
Framtíðarsýn ELVA Golf er skýr: að verða lykilverkfæri í golfþjálfun um allan heim. Markmið fyrirtækisins er að gera nákvæma sveiflugreiningu að sjálfsögðum hluta af golfþjálfun, rétt eins og golfhermar hafa orðið staðalbúnaður á æfingaaðstöðu.
Á næstu árum stefnir ELVA Golf að því að:
- Innleiða kerfið í golfklúbbum, háskólum og kennsluaðstöðu um allan heim
- Styðja golfkennara með betri verkfærum til að bæta árangur nemenda
- Hjálpa kylfingum á öllum getustigum að bæta sig hraðar og markvissar
- Styrkja stöðu sína sem leiðandi fyrirtæki í þróun og markaðssetningu á tæknibúnaði fyrir golfþjálfun
Með ELVA Golf er golfþjálfun að færast yfir á nýtt stig þar sem vísindi, gögn og einfaldleiki vinna saman til að bæta árangur kylfinga hraðar en gengur og gerist í dag.
Hægt er að fylgjast með ELVA á Facebook og Instagram
Instagram - Elvagolf.iceland og Elvagolf
Facebook - Elvagolf


