Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Einherjum fjölgar - tvö draumahögg á Húsavík á sömu holu á 20 mínútum
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
þriðjudaginn 28. júlí 2026 kl. 07:25

Einherjum fjölgar - tvö draumahögg á Húsavík á sömu holu á 20 mínútum

Kylfingar á Íslandi eru búnir að vera heitir í sumar og margir hafa farið holu í höggi. Hér kemur uppfærsla á þann lista, nýir Einherjar. Þeir eru örugglega fleiri og kylfingur.is hvetur kylfinga til að láta vita eða senda á [email protected]

Halldór Jóhannsson, kylfingur úr Golfklúbbi Akureyrar, gerði sér lítið fyrir og sló draumahöggið á 4. holu á Katlavelli í 20. júlí 

Annað draumahögg leit dagsins ljós sama dag, aðeins tuttugu mínútum síðar þegar María Pálsdóttir fór holu í höggi á sömu braut, Spænugilinu. Hverjar eru líkurnar á þessu? 

Gunnar Guðmundsson félagi í Golfklúbbi Mosfellsbæjar sló draumahöggið á 7. braut á Hlíðavelli nýlega, 105 metra högg - létt nía - Hola í Höggi!! Rosalegt!, sagði kappinn á Facebook.

Hinn 13 ára gamli Jón Ómar Sveinsson gerði sér lítið fyrir og fór holu í höggi á 8.holu á Skálavelli þann 20 júlí. Þennan dag var sunnangola og 25 stiga hiti og hann notaði 6 járn.

Og hér kemur draumahöggsfrétt frá Selfossi.

Svandís Eva Brynjarsdóttir úr GR fór holu í höggi á 10. holu. Svandís var að spila æfingahring fyrir íslandsmót unglinga í holukeppni.

Grindvíkingurinn Friðrik Franz Guðmundsson er tæplega tvítugur kylfingur í GG sem sló draumahöggið nú fyrir stuttu á 7. braut vallarins.

Friðrik Franz notaði 48 gráðu fleygjárn í verkið og sagði að höggið hafi verið frábært!

Þetta er annað draumahöggið sem hann slær en 20. september 2023 fór hann holu í höggi á fjórtándu.

Kristinn Kristinsson, grjótharður KR-ingur smellti síðan boltanum í holu eftir fínt högg á 2. braut í Vestmannaeyjum.

Böðvar Bragi Pálsson úr Golfklúbbi Reykjavíkur, einn af afrekskylfingum landsins gerði sér svo lítið fyrir og fór holu í höggi á 9. braut á öðrum keppnisdegi á Lexus stigamótinu í síðustu viku. Við fundum ekki draumahöggsmynd af kappanum en birtum hér eina úr okkar safni.