Draumahöggin koma í hrönnum og Einherjahópurinn stækkar
Kylfingar á Íslandi hafa tekið opnun valla vel og flykkjast út á golfvöll. Draumahögg eru slegin og strax í vikunni en þá fóru að minnsta kosti þrír kylfingar holu í höggi.
Á Urriðavelli gerði gullaldar knattspyrnudrengur úr Keflavík, Grétar Magnússon, sér lítið fyrir og fór holu í höggi á 8. braut á opnunardegi vallarins í vikunni. Grétar var í gullaldarliði Keflavíkur í knattspyrnu og var lengi að hugsa sig um áður en hann hóf golfiðkun fyrir nokkrum árum. Síðan hefur hann ekki litið til baka og er nánast fluttur út á golfvöll, hér heima eða í útlöndum.
Á Hlíðavelli koma draumahöggin reglulega. Róbert Guðmundsson negldi í holu á 18. braut af 143 metrum og var með 8-járn. Svo skemmtilega vildi til að þetta var í harðri keppni og Heiðar Númi spilafélagi Róberts lýsti því svo á Facebooksíðu GM: „Þetta var mjög mikilvægt högg þar sem þetta var eini sénsinn okkar á að vinna Rónann sem var tölfræðilega tapaður. En hola í höggi vinnur leikinn”.
Fleiri en eitt draumahögg hafa sést á Þorláksvelli í vor. Arnar Már Pétursson setti í holu á 10. braut í vikunni.


