Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Dagbjartur í 8. sæti í Svíþjóð
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
sunnudaginn 24. maí 2026 kl. 11:29

Dagbjartur í 8. sæti í Svíþjóð

Dagbjartur Sigurbrandsson úr GR endaði í 8. sæti á Cutter & Buck Fjällbacka Open mótinu á Nordic Golf League mótaröðinni en leikið var á Fjällbacka vellinum í Svíþjóð 21. - 23. maí. Dagbjartur er eftir þennan árangur í 20. sæti stigalistans.

Dagbjartur lauk leik á sjö höggum undir pari í heildina og endaði jafn í áttunda sæti mótsins. Með þessu jafnar hann sinn næstbesta árangur á tímabilinu, en þetta er í þriðja skiptið sem Íslandsmeistarinn endar jafn í áttunda sæti í sumar.

Dagbjartur lék fyrsta hringinn á 71 höggi eða pari vallarins, annan hringinn á 67 höggum og þann þriðja á 68 höggum, með glæsilegum erni á síðustu.

Dagbjartur hefur leikið gott golf í mótunum á Nordic og er í 20. sæti. Sigurður Arnar Garðarsson er í 32. sæti en hefur leikið í mun færri mótum. Efstu fimm kylfingar stigalistans í lok tímabilsins vinna sér inn þátttökurétt á HotelPlanner Tour mótaröðinni.

Staðan á stigalistanum.