Dagbjartur fjórði og Hlynur í tíunda
Dagbjartur Sigurbrandsson og Hlynur Bergsson enduðu báðir meðal tíu efstu á Folksam mótinu sem fram fór á hinum kunna Barseback golfvelli í Svíþjóð á Nordic mótaröðinni.
Dagbjartur endaði mótið jafn í fjórða sæti á átta höggum undir pari, 68-72-71. Þetta er í annað sinn sem hann nær þessum árangri á mótaröðinni
Hlynur sem var jafn í efsa sæti fyrir lokahringinn lék lokahringinn á tveimur yfir pari og endaði jafn í tíunda sæti, 69-70-75.
Svíinn Algot Kleén vann mótið á 13 höggum undir pari. Lokahringur upp á átta högg undir pari tryggði honum sigur með tveggja högga mun.
Dagbjartur er í 27. sæti á stigalistanum og Hlynur í 32. sæti.
Sigurður Arnar Garðarsson er í 37. sæti en hann var ekki meðal keppenda á mótinu á Barseback.



