Fréttir

Buhai búin að auka forskot sitt
Ashleigh Buhai
Rúnar Arnórsson
Rúnar Arnórsson skrifar
föstudaginn 2. ágúst 2019 kl. 21:10

Buhai búin að auka forskot sitt

Annar dagur Opna breska kvennamótsins fór fram í dag og er það hin suður-afríska Ashleigh Buhai sem er í forystu eftir daginn. Forysta hennar jókst um tvö högg í dag og er hún orðin þrjú högg eftir daginn.

Buhai lék á 65 höggum í gær og fylgdi því eftir með hring upp á 67 högg í dag. Hún er ekki búin að tapa nema einu höggi í öllu mótinu og kom sá skolli í gær. Í dag fékk hún fimm fugla og restina pör. Buhai er samtals á 12 höggum undir pari eftir daginn.

Ein í öðru sæti er hin japanska Hinako Shibuno. Hún var einnig í öðru sæti eftir daginn í gær en þá aðeins einu höggi á eftir. Eftir hring upp á 69 högg er Shibuno á samtals níu höggum undir pari. Lizetta Salas er svo ein í þriðja sæti á átta höggum undir pari.

Hérna má sjá stöðuna í mótinu.