Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Björgvin og Rut klúbbmeistarar GS
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
sunnudaginn 12. júlí 2026 kl. 10:47

Björgvin og Rut klúbbmeistarar GS

Björgvin Sigmundsson og Rut Þorsteinsdóttir eru klúbbmeistarar Golfklúbbs Suðurnesja 2022. Sigur Rutar var öruggur en það var mikil spenna fram á síðustu holu hjá körlunum.

Björgvin náði forystu í byrjun móts en lék illa á þriðja hring og þá færðist fjör í toppbaráttuna. Róbert Smári Jónsson náði forystunni en Pétur Þór Jaidee blandaði sér líka í hana og stutt var í þá Guðmund R. Hallgrímsson og Sigurpál Geir Sveinsson. Úrslitin réðust ekki fyrr en á síðustu níu holunum þar sem Björgvin lék best. Róbert Smári var nálægt því að jafna við hann í lokapúttinu fyrir erni en boltinn fór ekki í og Björgvin fagnaði eins höggs sigri og sínum öðrum klúbbmeistaratitili.

Björgvin endaði á 296 höggum (73-70-80-73), Róbert Smári á 296 (74-7l2-74-77) og Pétur Þór Jaidee á 297 höggum (79-72-72-75).

Rut varð klúbbmeistari í fimmta sinn en hún hefur á löngum ferli sigrað á fjórum áratugum (1999, 2000,2001, 2019 og 2026).

Hún lék 72 holurnar á 327 höggum. Önnur varð Sólveig Björgvinsdóttir á 383 höggum og þriðja Svandís Þorsteinsdóttir á 401 höggi.

Það var spenna í fleiri flokkum. Davíð Jónsson vann 1. flokkinn með góðum endaspretti og var höggi betri en Óskar Halldórsson.

Í 2. flokki karla voru þrír jafnir og eftir bráðabana stóð Atli Karl Sigurbjartsson uppi sem sigurvegari, Sveinn Björnsson varð annar og Sigurður Þór Hallgrímsson þriðji.

Öll úrslit má sjá hér.