Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

BEEF! Má ég fá mynd með þér? 
Fimmtudagur 4. júní 2026 kl. 10:26

BEEF! Má ég fá mynd með þér? 

Það eru margir litríkir karakterar á DP Evrópumótaröðinni - en fáir njóta jafn mikilla vinsælda og Andrew Johnston - betur þekktur sem „Beef“. Á laugardeginum á Soudal Open, þegar tíðindamaður kylfings.is var á mótinu, mátti sjá aðdáendur Johnstons fylgjast með honum á æfingasvæðinu að hita upp, og það voru líka ófáir sem biðu eftir Johnston þegar hann gekk af púttvellinum og báðu um eiginhandaráritun eða sjálfu með þessum vinalega Breta - sem virtist taka slíkum óskum af miklum velvilja og þolinmæði.  

Johnston stóð sig ágætlega á Soudal mótinu. Hann lauk leik á 14 höggum undir pari, endaði í þrettánda sæti og hlýtur að hafa verið ánægður með það, enda hefur þessi vinsæli kylfingur þurft að glíma við handarmeiðsli og langa meðferð sem haft hefur áhrif á feril hans á golfvellinum undanfarin ár.