Axel náði tveggja högga forskoti í Svíþjóð
Lék aftur á 4 höggum undir pari í dag og er samtals á 8 höggum undir pari
Axel Bóasson, GK, lék aftur vel á öðrum keppnisdegi Rewell Elisefarm Challenge á Ecco-mótaröðinni (Nordic Golf League) í dag. Axel kom í hús á 68 höggum eða á 4 höggum undir pari Elisefarm vallarins í Svíþjóð rétt eins og í gær. Hann er á samtals 8 höggum undir pari og er með tveggja högga forskot á Svíann Mikael Lindberg, sem er í öðru sæti sem stendur. Enn eiga margir kylfingar eftir að ljúka leik.
Axel var ræstur út af 10. teig í dag. Hann lék fyrri níu holur sínar á 34 höggum eða á 2 höggum undir pari og seinni níu holur sínar einnig. Axel fékk fimm fugla og einn skolla á hringnum.
Aron Snær Júlíusson, GKG, sem var í forystu ásamt hinum sænska Hannes Rönneblad, fyrir daginn í dag, lék ekki eins vel í dag og kom í hús á 2 höggum yfir pari og situr í 6.-12. sæti á 3 höggum undir pari.
Sex íslenskir kylfingar leika á mótinu. Aron Bergsson, sem leikur fyrir Hills Golfklúbbinn í Svíþjóð og Andri Þór Björnsson, GR eru farnir út á annan hringinn og þeir Bjarki Pétursson, GKG og Böðvar Bragi Pálsson, GR eru ræstir út núna um eittleytið á íslenskum tíma.