Átta kylfingar frá styrk frá Forskoti
Átta kylfingar fá úthlutað úr sjóði Forskots árið 2026 en árlegt golfmót sjóðsins, sem er afrekssjóður íslenskra kylfinga, fór fram á Hólmsvelli í Leiru nýlega.
Þeir sem fá styrk að þessu sinni eru: Andrea Bergsdóttir, Dagbjartur Sigurbrandsson, Guðrún Brá Björgvinsdóttir, Gunnlaugur Árni Sveinsson, Haraldur Franklín Magnús, Hlynur Bergsson, Ragnhildur Kristinsdóttir og Perla Sól Sigurbrandsdóttir.
Allir þessir kylfingar að Perlu Sól og Gunnlaugi Árni undanskildum, eru að keppa í atvinnumennsku. Þau tvö eru í háskólanámi og stunda golfíþróttina samhliða.




