Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Andrea í 7. sæti í Svíþjóð - þær íslensku ofarlega á stigalistanum
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
laugardaginn 27. júní 2026 kl. 10:02

Andrea í 7. sæti í Svíþjóð - þær íslensku ofarlega á stigalistanum

Andrea Bergsdóttir endaði jöfn í 7. sæti á PGA mótinu á Elisefarm golfvellinum í Svíþjóð á LETas mótaröðinni í Evrópu. Andrea lék lokahringinn á tveimur undir og -1 í heildina. Hulda Gestsdóttir endaði jöfn i 21. sæti.

Eftir erfiðan fyrsta hring lék Andrea frábært golf næstui 36 holur og fékk tíu fugla í hringjunum tveimur.

Hulda Gestsdóttir átti frábæran lokahring á fjórum undir pari en lék fyrstu tvo á +8. Hulda fékk sex fugla í lokahringnum og fékk einn tvöfaldan skolla.

Ragnhildur Kristinsdóttir var ekki meðal keppenda.

Perla Sól Sigurbrandsdóttir lék hins vegar á sínu fyrsta LETas móti og var tveimur höggum frá niðurskurði.

Hulda Gestsdóttir er í 6. sæti stigalistans með 653 stig en hún vann sem kunnugt er sitt fyrsta mót nýlega.

Ragnhildur er í 11. sæti listans með 413 stig og Andrea er í 25. sæti.

Sjö efstu í lok keppnistíðar fá fullan keppnisrétt á LET mótaröðinni, þeirri efstu í Evrópu.

Lokastaðan í Svíþjóð.