Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Andlát: Jóhann R. Benediktsson
Þriðjudagur 11. ágúst 2026 kl. 10:31

Andlát: Jóhann R. Benediktsson

Jóhann Ragnar Benediktsson (Jói Ben) málarameistari og fyrrverandi landsliðseinvaldur, lést þann 6. ágúst síðastliðinn, 95 ára gamall.

Jói Ben fæddist 14. nóvember 1930 á Þórkötlustöðum, Grindavík. Útförin fer fram frá Keflavíkurkirkju miðvikudaginn 19. ágúst og hefst athöfnin klukkan 13:00.

Jóhann var einn af fyrstu afrekskylfingum Golfklúbbs Suðurnesja og lét snemma til sín taka eftir stofnun klúbbsins sem var 1964. Jói varð fljótt lágforgjafarkylfingur. 

Jóhann var í landsliði Íslands 1970 og 1974 og keppti m.a. á Eisenhower móti. Hannn lék með öldungalandsliði 55 ára og eldri, 1986-1997, og öldungalandsliði 70 ára og eldri, 2000-2001. Hann var landsliðseinvaldur karla í golfi 1988-1993, og urðu þeir Norðurlandameistarar 1992 á heimavelli, í Grafarholti, undir hans stjórn. 

Jóhann keppti fyrir Íslands hönd í Eisenhower-móti. Ferðin varð enginn frægðarför enda völlurinn miklu lengri en þeir voru vanir, sandglompur út um allt og hitabylgja á Spáni.

Hann var alltaf félagi í Golfklúbbi Suðurnesja og var gerður að heiðursfélaga 2009. Jói varð á sínum ferli tvisvar klúbbmeistari GS, og starfaði í mótanefnd í 20 ár.

Jóhann Ragnar lætur eftir sig þrjú börn: Benedikt, Kristbjörgu og Jóhönnu. Barnabörnin eru 7 talsins og barnabarnabörnin 14.