Örninn 2026
Örninn 2026

Fréttir

Ágæt byrjun hjá Íslendingunum á EM öldunga
Páll Ketilsson
Páll Ketilsson skrifar
fimmtudaginn 11. júní 2026 kl. 20:55

Ágæt byrjun hjá Íslendingunum á EM öldunga

Íslensku kylfingarnir á Evrópumeistaramótii einstaklinga 50+ sem fram fer á Eléa Golf Club í Kýpur byrjuðu ágætlega á fyrsta hring. Alls eru 144 keppendur skráðir til leiks á þessu 31. Evrópumeistaramóti, í flokki karla og kvenna.

Sigurbjörn Þorgeirsson úr Golklúbbi Fjallabyggðar lék á 76 höggum, + 5 í fyrsta hring og er jafn í 51. sæti.

Guðmundur Rúnar Hallgrímsson úr Golfklúbbi Suðurnesja lék á 79 höggum, +8 en Suðurnesjakylfingurinn fékk þrjá tvöfalda skolla sem kostuðu sitt. Hann er jafn í 68. sæti.

Ragnheiður Sigurðardóttir úr GKG lék á 80 höggum, + 6 en hún lék fyrstu brautina á +3 þannig að restina lék hún vel. Ragnheiður er jöfn í 17. sæti.

Þórdís Geirsdóttir úr Golfkúbbnum Keili lék á á 82 höggum + 8 en kvennavöllurinn er par 74 en 71 hjá körlunum. Þórdís er jöfn í 29. sæti. Hún keppir einnig í flokki 60 ára og eldri og þar er hún í 7. sæti, þremur höggum á eftir forystukonunni.

Staðan.

Alls taka 90 karlar og 54 konur þátt í mótinu sem leikið er yfir 54 holur. Eftir 36 holur verður skorið niður, þar sem 54 efstu karlarnir og 33 efstu konurnar halda áfram leik. Verðlaun eru veitt fyrir efstu þrjá kylfinga mótsins ásamt aukaverðlaunum fyrir bestan árangur í flokki 60+. Þórdís Geirsdóttir er eini íslenski kylfingurinn sem er á meðal keppenda í þeim flokki.